1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum https://sem.is eigu S.E.M,samt endurh mænuskaddaðra, kt. 510182-0739, Sléttuvegi 3, 103 Reykjavík – í skilmálum þessum nefnt SEM. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur SEM annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.
„Söluaðili“ er fyrirtæki sem býður vöru eða þjónustu til sölu á www.sem.is
„Kaupandi“ er einstaklingur sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup.
Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.
2. Persónuupplýsingar
SEM meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast SEM eru skráðar rafrænt í gagnagrunn SEM og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.
Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi SEM samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til SEM í tölvupósti á formadur@sem.is eða bréflega á heimilisfang SEM, Sléttuvegi 3, 103 Reykjavík. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.
SEM áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum, er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu.
3. Frágangur viðskipta
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála SEM.
Keyptur miði er gildur á núverandi happadrætti, og þarf að vitja vinninga innan árs frá útdrátts.
4. Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun SEM á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum SEM.