Arnar Helgi ætlar að hjóla 400 kílómetra með höndunum

Það er fátt eða ekkert, sem stoppar Arnar Helga Lárusson í Reykjanesbæ því hann ætlar sér að hjóla fjögur hundruð kílómetra með höndunum á sólarhring á Suðurlandi í sumar. Arnar er lamaður frá brjósti eftir mótorhjólaslys.

Arnar Helgi býr í Innri Njarðvík í Reykjanesbæ með fjölskyldu sinni. Hann lamaðist eftir mótorhjólaslys árið 2002. Hann er algjör nagli og lætur ekkert stoppa sig í lífinu. Nú er hann að æfa sig að hjóla undir yfirskriftinni „Sem fuglinn fljúgandi. Hann klæðir sig í íþróttapeysuna inn í bílskúr áður en farið er upp á aðra hæð með lyftu þar sem hann er með hjólið sitt. Fyrir framan hann á hjólinu er stórt sjónvarp þar sem hann sér sig hjóla upp holt og hæðir. Arnar fær sér næringarefni fyrir hverja æfingu.

„Það besta sem þú færð er náttúrulega bara góður matur, það er númer eitt, tvö og þrjú í svona miklum æfingum, það er að næra sig vel, þú getur ekki gert þetta án góðrar næringar. Síðustu sjö vikur hef ég aldrei hjólað undir 400 kílómetrum. Eins og í fyrradag hjólaði ég 200 kílómetra. Þá tek ég náttúrulega daginn eftir frí, það er ekkert annað hægt, það eru að detta af þér hendurnar, þú getur varla lokað lófunum,“ segir Arnar Helgi.

Arnar Helgi ætlar að hjóla í sumar 400 kílómetra á innan við sólarhring á Suðurlandi og vekja þannig athygli á hreyfingu fyrir hreyfihamlaða og safna í leiðinni fyrir fjórum rafmagns fjallahjólum fyrir hreyfihamlaða en Arnar er formaður Sem samtakanna, sem eru samtök endurhæfðra mænuskaddaðra. Samtökin myndu hafa umsjón með hjólunum en hvert þeirra kostar tvær og hálfa milljón króna. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttafélag fatlaðra.

Margir myndu segja að Arnar Helgi væri ofvirkur í veikri merkingu þess orðs.

„Nei, nei, er bara duglegur,“ segir hann hlægjandi.

En tekur Arnar æfingarnar í einni beit eða hvílir hann sig á milli?

„Ég stoppa aldrei, eins og þegar ég hjólaði 200 kílómetra í fyrradag stoppaði ég aldrei. En stundum stoppa ég ef ég þarf að pissa en það er þó mjög misjafnt.“

Arnar Helgi segir að lífið sé langt frá því að vera búið þó maður sé lamaður, það séu svo margt skemmtilegt hægt að gera en þar skipti þó jákvætt hugarfar öllu máli, það sé sterkasti hlekkurinn í keðjunni. Hann segist aldrei hugsa um það að hann sé lamaður, mottóið hans sé að vera betri maður í dag en í gær og að vera góð fyrirmynd fyrir börnin sín þrjú og aðra, sem hann umgengst.

Arnar er alveg handviss um að hann fari létt með að hjóla á höndunum þessa 400 kílómetra á sólarhring í sumar, hann verði jafnvel bara tæplegan  sólarhring að rusla þessu af.

Styrkja

Fuglinn fljúgandi

Arnar Helgi Lárusson ætlar að hjóla 400 kílómetra með höndunum og safna í leiðinni fyrir fjórum rafmagns fjallahjólum fyrir hreyfihamlaða, en hvert þeirra kostar tvær og hálfa milljón króna. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttafélag fatlaðra.
Hér getur þú stutt við verkefnið. Veldu upphæð og smelltu á “Setja í körfu” til að styrkja verkefnið.

SKU: fuglinnfljugandi Category: