Framkvæmdir við orlofshús SEM í fullum gangi
Framhaldsfrétt – október 2026
Mikið hefur áunnist við byggingu nýs orlofshúss SEM samtakanna að Hólmatröð 1 í Eyjafjarðarsveit frá því við sögðum síðast frá framkvæmdunum í ágúst. Húsið tekur nú sífellt skýrari mynd og unnið hefur verið af miklum krafti bæði innan dyra og utan.

[Mynd 1 – Orlofshús SEM í Eyjafjarðarsveit. Unnið er að frágangi hússins og lóðarinnar.]
Húsið tekur á sig mynd
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að utanhússklæðningu, þakfrágangi og ýmsum framkvæmdum innanhúss. Meðal annars hefur verið unnið að raflögnum, pípulögnum og tengingum fyrir heitt og kalt vatn, fráveitu og ljósleiðara.
Einnig hefur verið komið hita á húsið með bráðabirgðatengingu á gólfhita, sem er mikilvægur áfangi nú þegar vetur nálgast.
Aðgengi í fyrirrúmi
Mikil vinna hefur farið í undirbúning og mótun lóðarinnar. Um 200 rúmmetrar af frostfríu fyllingarefni hafa verið keyptir og er lóðin nú að mestu komin í fyrirhugaða hæð og lögun.
Sérstök áhersla er lögð á að tryggja gott aðgengi fyrir hjólastólanotendur, bæði að húsinu og á útisvæðum. Gert er ráð fyrir rúmgóðum pöllum, greiðum aðkomuleiðum og góðum bílastæðum með nægu rými fyrir bíla með hjólastólalyftum.

[Mynd 2 – Jarðvinna og undirbúningur lagna við húsið.]
Ómetanlegt framlag Arnars Helga Lárussonar
Arnar Helgi Lárusson, stjórnarmaður í SEM samtökunum, hefur alfarið umsjón með framkvæmdunum og lagt ómetanlega vinnu í verkefnið.
Á tímabilinu 16. september til 14. október dvaldi Arnar fyrir norðan og vann nánast daglega að fjölbreyttum verkefnum, allt frá jarðvinnu og lögnum til skipulagningar og samskipta við iðnaðarmenn.
Hann hefur jafnframt lagt mikla áherslu á hagkvæmar lausnir og gott aðgengi fyrir hjólastólanotendur.
SEM samtökin færa Arnari Helga innilegar þakkir fyrir hans einstaka dugnað, ósérhlífni og ómetanlega framlag til verkefnisins.

[Mynd 4 – Unnið hefur verið að lögnum og tengingum fyrir gólfhita.]

[Mynd 5 – Bráðabirgðakaffiaðstaða hefur verið sett upp fyrir þá sem vinna við framkvæmdirnar.]
Næstu skref
Enn er töluverð vinna fram undan áður en húsið verður tilbúið til notkunar. Á næstunni verður meðal annars unnið að loftaklæðningu, hurðum, gluggakistum og áframhaldandi frágangi innan húss og utan.
Það er mikið ánægjuefni að sjá þennan langþráða draum SEM samtakanna smám saman verða að veruleika.
Við hlökkum til þess dags þegar við getum boðið félagsmönnum að njóta dvalar í þessu aðgengilega orlofshúsi í fallegu umhverfi Eyjafjarðar.

