Framkvæmdir við Hólmatröð 1 í Eyjafjarðarsveit

Það eru spennandi tímar hjá SEM samtökunum en framkvæmdir við nýtt orlofshús félagsins að Hólmatröð 1 í Eyjafjarðarsveit ganga vel.
Undirbúningur verkefnisins hófst fyrir um þremur árum þegar félagið fékk úthlutað lóðinni. Í kjölfarið hófst vinna við hönnun hússins og frá upphafi var lögð mikil áhersla á að vanda vel til verka.
Meginmarkmiðið var að hanna fallegt og notalegt orlofshús með gott aðgengi fyrir fólk sem notar mismunandi gerðir hjólastóla. Húsið er allt á einni hæð og aðkoma frá bílastæðum að húsinu verður þreplaus.

Gólfplatan steypt. Þann 26. maí var stórum áfanga í framkvæmdunum náð.
Frá grunni að fullmótuðu húsi
Þann 26. maí var búið að steypa gólfplötu hússins. Áður hafði verið gengið frá meðal annars gólfhitalögnum sem lagðar eru í plötuna.

Hitalagnir lagðar í grunninn áður en gólfplatan var steypt.
Húsið verður rúmgott, alls um 237 fermetrar. Í því verða þrjú svefnherbergi eitt með sér snyrtingu. Einnig er lítil íbúð sem er sérstaklega hugsað sem aðstaða fyrir aðstoðarmann dvalargests ef þörf er á.
Húsið rís
Í byrjun júlí komu gámarnir með húseiningunum á staðinn og fljótlega eftir það hófst uppsetning hússins. Þá fór heldur betur að sjást árangur af öllum undirbúningnum.

Í byrjun júlí komu húseiningarnar á staðinn og uppsetning hússins hófst.

Útveggir komnir upp og húsið farið að taka á sig mynd.
Komið undir þak í byrjun ágúst
Framkvæmdir gengu hratt fyrir sig. Í byrjun ágúst var húsið allt komið upp, búið var að setja alla glugga og hurðir í og ganga frá dúk á þakinu.

Í byrjun ágúst var húsið risið, gluggar og hurðir komin í og dúkur kominn á þakið.
Þetta var stór og ánægjulegur áfangi í verkefninu og mikil breyting frá því aðeins nokkrum vikum áður þegar gólfplatan ein var sýnileg.
Aðgengi nær einnig til lóðarinnar
Gott aðgengi snýst ekki eingöngu um húsið sjálft. Mikilvægt er að aðkoma og umhverfi hússins henti einnig þeim sem þar munu dvelja. Í framhaldi af uppsetningu hússins var því hafist handa við jarðvegsskipti á lóðinni.
Samkvæmt hönnun verður aðkoma að húsinu þreplaus. Gert er ráð fyrir steyptum eða hellulögðum aðkomuleiðum og verandir austan og vestan við húsið verða með snjóbræðslukerfi.

Hafist handa við jarðvegsskipti og undirbúning lóðarinnar.
Spennandi tímar framundan
Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu langt verkefnið er komið. Það sem hófst með úthlutun lóðar og hugmynd að aðgengilegu orlofshúsi fyrir um þremur árum er nú orðið að reisulegu húsi sem tekur á sig skýrari mynd með hverjum deginum.

Framkvæmdir við Hólmatröð 1 – nú tekur við næsti spennandi áfangi.
Enn er ýmislegt eftir áður en hægt verður að taka húsið í notkun, bæði innan húss og utan, og því eru spennandi tímar framundan.
Við hlökkum mikið til að fylgjast með næstu skrefum og sjá þetta metnaðarfulla verkefni verða að fullbúnu orlofshúsi fyrir félagsmenn SEM samtakanna.
