Húsnæðisfélag SEM (H-SEM) var stofnað 19. mars 1990. Félagið á fjölbýlishús með 20 íbúðum á Sléttuvegi 3 Reykjavík, auk tveggja annarra íbúða.
Eingöngu félagsmenn SEM geta sótt um íbúðir.
Nánari upplýsingar um leigu gefur skrifstofa í síma: 895-7470 og sem@sem.is
- Kennitala húsnæðisfélags SEM: 570190-2889
- Reiknisnúmer: 323-26-96
Markmið þess eru:
- Að byggja og reka félagslegt íbúðarhúsnæði sem taki tillit til sérþarfa hreyfihamlaðra, handa félögum SEM.
- Safna, taka við og ráðstafa fé til byggingar og reksturs félagslegra íbúða, sameignar íbúðarhúsa og fyrir nauðsynlega aðstoð við íbúa eða aðra skylda þjónustustarfsemi.
Árið 1989 var ráðist í það stórvirki að byggja 20 íbúða blokk að Sléttuvegi 3 í Reykjavík.
Húsnæðisstofnun ríkisins veitti lán til 50 ára fyrir 90% af byggingaverði hverrar íbúðar, en 10% fjármagnaði SEM með fjársöfnun.
Fyrstu íbúar fluttu inn í júní 1991 þessi íbúðafjöldi svaraði þörfum SEM samtakanna við að koma félagsmönnum sínum í hentugt húsnæði. Árið 1995 var þörf á fleiri íbúðum og þá var farið útí að kaupa notaðar íbúðir á frjálsum markaði og breyta eldhúsi og baði þannig að það hentaði fyrir hreyfihamlaða. Til ársins 2001 voru þannig keyptar 11 íbúðir og aðlagaðar fyrir hreyfihamlaða. Í þessum íbúðum var 10% fjármagnað af framkvæmdarsjóði fatlaðra.
Frá 1995 til 2001 var hægt að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði fyrir fatlað fólk og fá 90% lánsfé á 1% vöxtum til 50 ára og 10% af stofnfé sem styrk en þá var Húsnæðisstofnun ríkisins og félagslega kerfið lagt niður og í staðinn kom Íbúðalánasjóður. Í dag er ekki möguleiki á því að fá þessi hagstæðu lán þannig að félag eins og H-SEM á engan möguleika á því að byggja eða kaupa notað húsnæði á þeim kjörum sem nú bjóðast til að fjármagna þann kostnað.