Aðalfundur SEM og H-SEM fór fram fimmtudaginn 30. apríl 2025 kl. 18:00 á Kringlukránni í Reykjavík. Fundurinn hófst stundvíslega kl. 18:00 undir stjórn fundarstjóra, Hákons Atla Bjarkarsonar og Jóhann Rúnar Kristjánsson var skipaður fundarritari. Á fundinn mættu tíu félagsmenn auk tveggja aðstoðarmanna.
Skýrslur og reikningar
Arnar Helgi kynnti skýrslu stjórnar SEM fyrir árið 2024 og reikningar félagsins voru lagðir fram og samþykktir einróma. Reikningar H-SEM voru kynntir. Árgjald félagsins var haldið óbreytt, 2.000 krónur.
Lagabreytingar
Lagabreytingar sem samþykktar voru á aðalfundi 10. apríl 2024 voru staðfestar og tóku þegar gildi.
Kosningar í stjórn SEM
Arnar Helgi gaf ekki kost á sér áfram sem formaður SEM. Rúnar Björn Herrera var kosinn formaður til eins árs. Jóhann Rúnar Kristjánsson var endurkjörinn sem gjaldkeri til tveggja ára. Arnar Helgi og Hákon Atli voru kosnir sem meðstjórnendur til tveggja ára. Aðalbjörg Guðgeirsdóttir, Sunna Elvíra Þorkelsdóttir og Fannar Þorbergsson eiga eitt ár eftir af sinni setu.
Kosningar í stjórn H-SEM
Rúnar Björn tekur sæti sem meðstjórnandi 0 þar sem kosinn formaður SEM. Aðalbjörg Guðgeirsdóttir og Arnar Helgi voru kosin í stjórn H-SEM til næstu tveggja ára. Jóhann Rúnar og Sunna Elvíra eiga eitt ár eftir af sinni setu. Hákon Atli og Árni Geir voru kosnir sem varastjórnendur til tveggja ára. Fannar Þorbergsson á eitt ár eftir af sinni setu.
Önnur mál
Í lok fundar þökkuðu fundarmenn Arnari Helga Lárussyni fyrir óeigingjörn störf hans sem formaður SEM í tólf ár. Þá var rætt um hugmyndir um að kanna möguleika á eign eða leigu íbúðar eða húss á Spáni.
Fundi var slitið kl. 19:35 af nýjum formanni, Rúnari Birni Herrera. Fundargerð var rituð af Jóhanni Rúnari Kristjánssyni.