Vil engin forréttindi – bara sömu réttindi og aðrir Arnar Helgi Lárusson lenti í hræðilegu vélhjólaslysi fyrir átján árum síðan, í september 2002, sem skyldi hann eftir lamaðan frá brjósti og niður. Strax eftir slysið fór hann í að byggja sig upp. „Ég er pínu ofvirkur, hef ekki verið greindur en konan mín segir að ég myndi sprengja alla skala. …
Happdrætti SEM 2020
Hið árlega happdrætti SEM er farið af stað og hægt er að nálgast miða hér á síðunni með rafrænum hætti. Fjöldi frábærra vinninga í boði! Smellið á tengil: https://sem.is/product/happdraetti-2021/
Arnar Helgi varð afreksíþróttamaður eftir að hann lamaðist
Arnar Helgi Lárusson var sjómaður þangað til hann lenti í mótorhjólaslysi í september 2002 þá 26 ára gamall og lamaðist frá brjósti og niður. „Ég var að æfa mig fyrir kvartmílu seint að kvöldi og misreikna mig eitthvað aðeins og tekið rönnið í öfuga átt og fer bara út af. Og lendi í grjóti og brýt sex hryggjarliði og kominn …
Egill Fjeldsted gefur út bók um krapaflóðin á Patreksfirði 1983
Fjórir létust og nítján hús skemmdust í snjóflóðunum sem féllu á Patreksfirði með skömmu millibili 22. janúar árið 1983. Flestir bæjarbúar voru að hafa sig til fyrir þorrablót sem átti að fara fram um kvöldið þegar skelfingin dundi yfir. Egill Fjelsted man glögglega eftir þeim atburðum enda alinn upp á Patreksfirði. Á meðal þeirra sem létust var systir vinar Egils …
Arna Sigríður æfir handahjólreiðar og stefnir á Ólympímót fatlaðra 2021
Líf Örnu Sigríðar Albertsdóttur breyttist á einu augnabliki fyrir 12 árum þegar hún lamaðist í skíðaslysi. Hún lét það ekki stoppa sig heldur stundar hún handahjólreiðar og stefnir á Ólympíumót fatlaðra á næsta ári. Arna Sigríður Albertsdóttir ólst upp á Ísafirði þar sem hún stundaði íþróttir af kappi, þar á meðal skíði. Þegar hún var 16 ára lenti hún í …
Aðalfundur 2020
Aðalfundur SEM og H-SEM var haldinn 28. maí síðastliðinn. Í upphafi fundar bauð Arnar Helgi Lárusson formaður SEM alla velkomna. Að því búnu las hann upp skýrslu stjórnar SEM. Kom þar meðal annars fram að Jafningjafræðsla á Grensásdeild hefi gengið vel í vetur, þar til COVID-19 setti strik í reikninginn. Allmargir hafi nýtt sér hana og vel sé látið af …
Aðalfundarboð
Aðalfundur SEM og H-SEM verður haldinn á morgun fimmtudaginn 28. maí kl. 18:00 í sal SEM hússins að Sléttuvegi 3. Léttar veitingar í lok fundar. Meðal efnis á dagskrá: Skýrsla stjórnar, kosið í nefndir og venjuleg aðalfundarstörf. Kveðja, Stjórnin
Aðalfundur SEM og H-SEM
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. maí 2020 kl. 18:00 í salnum í SEM húsinu að Sléttuvegi 3. Dagskrá fundarins er eftirfarandi samkvæmt samþykktum félagsins: Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári. Skýrsla stjórnar H-SEM. Skýrslur annara nefnda eða fulltrúa félagsins. Endurskoðaðir reikningar félagsins. Reikningar H-SEM lagðir fram til kynningar . Árgjald félagsins ákveðið. Lagabreytingar. Kosning stjórnarmanna fyrir þá sem lokið hafa setu …
Covid vs mænuskaði
Við hjá SEM samtökunum höfum áhyggjur af þessari Coronaveiru og spurðum Pál Ingvarson lækni á Grensás eftirfarandi spurningar svo við gætum upplýst félagsfólk. Er fólk með mænuskaða útsettara til að veikjast? Er veiran að legjast harðar á fólk með mænuskaða? Eru komnar einhverjar leiðbeiningar hvernig fólk með mænuskaða á að haga sér í svona aðstæðum? Er vitað til að fólk …